Bloggsíða Londonfara

Velkomin á ferðasöguna mína.

10.10.2006 15:49:44 / londonboy

Hætti með þessa síðu!!!

Ég er að spá í að hætta að nota þessa síðu................   Er ekki að fíla hvað hún er takmörkuð..........   Kominn með nýja síðu þar sem ég get sett inn myndir og svona............


camdenboy.bloggar.is

OG COMMENTA SVO!!!!!!!!!!!!!!!!

LEIÐINLEGT AÐ SJÁ AÐ ÞAÐ ER FULLT AF FÓLKI AÐ KOMA AÐ SKOÐA EN ENGINN SEGIR NEITT!!!!!!!!!!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 23:42:34 / londonboy

Brent Cross

Jæja það gerðist nú í raun ekkert spes í dag..........

Ég fór í verslunarmmiðstöðina í Brent Cross í fyrsta skipti í dag. Var svosem ágætt...........

Þorði í fyrsta sinn í 2 ár að smakka Burger King aftur........  Síðast þegar ég smakkaði þá á lestarstöðinni við Liverpool stræti fannt mér hamborgarinn ógeðslegur og hef ekki þorað að smakka þá síðan. Og vitiði hvað? Þó svo að mér hafi tekist að klára hann þá held ég að ég sé ekki að fara að smakka þá aftur í bráð. :S

En svolítið skrítið gerðist á leiðinni út, þegar ég var að labba út þá leit ég inn á McDonalds og þar sat maður í fullum skrúða við stórt píanó að spila, inni í matsalnum!!!  Það er eitthvað sem maður sér ekki á hverjum degi!8|


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.10.2006 14:54:10 / londonboy

NÝTT, NÝTT, NÝTT ! ! ! ! ! !

Jæja þá er ég kominn með þráðlaust net og get farið að blogga soldið meira og vonandi adeins oftar.

Ég er búinn ad gera nýja bloggsíðu á ensku, nýtt MySpace en gengur eitthvad erfiðlega ad gera nýtt blogg á íslensku (bloggar.is) Og svo er ég líka kominn með nýja Hotmail adressu......

Allavegana þetta verður allt sett hér inn þegar ég er búinn að klára að setja þetta allt upp..........  Vonandi bíði þið spennt!!!

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 00:18:49 / londonboy

Uppdate!

Jaeja tha er ad verda komnar 2 vikur sidan ad eg flutti og eg hef ekkert bloggad sidan a flugvellinum.

Flugid gekk bara vel fyrir utan thad ad vid thurftum ad fara nokkra hringi i kringum vollinn adur en ad vid lentum thvi ad thad var svo mikil umferd a sama tima. Og ja maturinn var ogedslegur :$

Thad er reyndar ekki mikid buid ad gerast hja mer, er adalega buinn ad vera ad skoda mig um og reyna ad laera a umhverfid. Eg held ad eg se buinn ad akveda hvar mig langar ad finna ibud...... I Camden 8) Thad er eitt litrikasta og skemmtilegasta hverfid her i London.......... (set inn myndir bradum)

Svo er eg audvitad ad leita ad vinnu..............  Gengur soldid haegt thar sem ad thad er virkilega mikid pappirsflod sem fylgir ollu i London. Ny kennitala og svona, tharf ad "sanna" hver eg er og hvar eg by og svona bullshit..........

Eg skodadi sundlaugina her i Archway.................  he he snilld! Hun er svo grunn ad thad er ekki fyndid..............! Eg var ad synda og einhver kall for ad hrosa mer fyrir hversu godur sundmadur eg vaeri! Bretar kunna nefnilega ekki ad synda!!!

Sund hefur ekki veri kennt i skolum her...................  thad er bara verid ad byrja a thvi nuna!!!:lol:

Eg er lika buinn ad vera ad skoda tattoo............(Mamma haettu ad lesa her)

Eg fann einn tattoo-verara i Camden sem mer list bara nokkud vel a og byst eg vid ad fara kannski til hans eftir naestu manadamot. Eg er ad fara med nokkra punkta til hans um hvad mig langar i og hann aetlar ad teikna upp nytt tattoo sem er ser gert fyrir mig. (Eins og eg sagdi mamma ekki lesa lengra) Fer ekkert ut i neinar nakvaemar lysingar her a sidunni thar sem margir sem lesa thessa sidu yrdu ekkert alltof anaegdir med thetta..... #hint# #hint#

Kallast vist "new school tattoo sleeve.

Meira seinna....................8)

Og ja eitt annad get ekki gert islenska stafi thvi ad eg verd ad fara a netid a annarri tolvu til ad byrja med......................


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 14:20:02 / londonboy

Þá er ég farinn!!!

Ég sit hérna á kaffihúsinu í Leifstöð að bíða eftir að fara um borð..........

Vá þá er bara komið að því, ég er opinberlega fluttur til London. Eftir nokkra tíma cmun ég sitja á hverfis-pöbbnum með bjór að spjalla við Terry........

Er ekki enn alveg búinn að fatta að ég bý ekki lengur á Íslandi. Þetta verður bara gaman.

Það er alltaf jafn gaman að fara í gegnum málmleitar-hliðið !!!! :haha:

Ég kem hérna í hermannabuxunum mínum og American Idiot bolnum og auðvitað pípir hliðið á mig............... :lol:

Kallinn sagði "Vinsamlegast fjarlægðu allan málm af þér....."

Ummmm....... sko það er nú kannski soldið meira en að segja það fyrir mig ;) Honum fannst það ekki fyndið.......:$

En á endanum var mér nú hleipt inn.........

En jæja nú nenni ég ekki að vera að blogga lengur, kemur meira frá London seinna............

Heyrumst!


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 14:23:39 / londonboy

HALLÓ ! ! ! ! !

Eruði að taka eftir hvað það er stutt eftir ! ! ! ! ! !

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 22:39:19 / londonboy

Bíllinn!!!




blog.central.is/rmc



Endilega hjálpið mér að selja bílinn minn!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 20:39:41 / londonboy

Verslunarmannahelgin ! ! !

Jæja þá verð ég víst að byrja á þessu aftur..................:evil:

Muna að "skrá færslu" nokkrum sinnum inn á milli! Það er alltaf hægt að bæta við!:cry:

Þar sem ég hvorki nennti né tímdi að eyða peningum í að fara eitthvert þessa helgi (var líka einn heima) þá skemmti ég mér bara með þeim vinum mínum sem eftir voru í bænum. Best er bara að skipta þessu niður á dagana því það var víst frekar mikið gert þessa helgi og hitti ég marga.

Fimmtudagur:

Það var nú ekki svo mikið að gerast þennan dag en svo náði ég á Guggu og Berglindi á MSN seint um kvöldið. Þær buðu mér að koma með sér og Dóra á djammið niður í bæ. Því miður vorum við ekki að fatta að þó svo að það væri versunarmannahelgi þá lokuðu staðirnir samt klukkan eitt. :S Þannig að þar sem ég var einn heima þessa helgi var það ég sem fékk að halda "partý". Við semsagt renndum heim til mín og spjölluðum til eitthvað um nóttina. Þegar fólk var orðið þreytt skutlaði Dóri Guggu heim og ég og Berglind leigðum Harry Potter í VOD. Eftir að runnið var af mér skutlaði ég svo Berglindi að ná í bílinn sinn og fór sjálfur í vinnuna. Ekki mikið frá að segja þetta kvöld.

Föstudagur:

Þetta kvöld einfaldlega treysti ég mér ekki til að vera að drekka. Ég hafði nú drukkið soldið mikið kvöldið áður og ætlaði svo aftur að drekka daginn eftir, laugardag. Ég skellti mér nú samt niður í bæ að rúnta smá. Seinna um kvöldið skellti ég mér á Glaumbar til að sjá hvort eitthvað væru um að vera. Siggi stóri og Nasi sátu auðvitað á sínum stað við borðið sitt og drukku. No surprize there :$ En allavegana sátum við að spjalla um stun þartil Nasi hafði fengið nóg og fór heim. Siggi og ég skelltum okkur á dansgólfið með misgóðum árangri :lol: Skutlaði honum svo heim og kvöldið var búið.

Laugardagur:


Mig langaði svo að drekka þetta kvöld en gekk ekki vel að finna fólk þar sem ALLIR voru í eyjum. Endaði með að fara á rúntinn með Sigga frænda á meðan ég drakk. Eftir að hafa keyrt um í smá tíma datt okkur í hug að fara á Stuðmanna-tónleikana í Fjölskyldu og Húsdýragarðinum. Því miður rétt náðum við endanum á tónleikunum. :( En allavegana var bara rúntað meira þá, ekki annað hægt. Eftir smá stund rúntandi um nánast tóman bæinn hennti Siggi mér út á Galumbar. Viti menn Siggi stóri þar. Við skemmtum okkur bara nokkuð vel og ég kannski aðeins of mikið. Skulum ekkert vera að fara nánar í það......... Sem betur fer þá hitti ég á Helenu sem er gömul bekkjasystir síðan úr Víðó og gátum við og vinur hennar sparað með því að taka bíl saman inn í Hafnarfjörð. Allt í allt bara nokkuð gott kvöld.

Sunnudagur:

Þá er það stóra kvöldið! STARFSMANNADJAMMIÐ ! :klikk: Þennan morgun var ég í alvöru að spá í að sleppa þessu djammi því ég var svo þunnur um morguninn að það var varla að ég kæmist á fætur. En ég harkaði af mér og hafði samband við laugina og reddaði mér fari með öðru fólki þaðan. Sá sko ekki eftir því!

Það var strax byrjað að drekka upp í laug og á leiðinni í bílnum. Fyndinn svipur á viðskiptavinunum sem voru að fara upp úr á meðan við vorum að taka okkur til og byrjum að drekka. :haha:

Þegar allir voru komnir upp í bústað til Ingva var byrjað að grilla. Kjöt, kjúklingur og flottheit. Auðvitað var drukkið rauðvín, hvítvín og bjór með. Augljóst hvert þetta stefnir 8) Þvi miður þá gleymdu allir "yngri" starfsmenn Sundlaugarinnar að taka með sér tónlist þannig að við urðum að sætta okkur við Sixtís og Papana, alltí lagi svosem enginn kvartaði.

(Kominn eitthvað hingað þegar allt datt út!!!)

Eftir hellingsdrykkju og skemmtilegar umræður lögðum við "yngri" starfsmenn laugarinnar (Sara, Marta, Hjalti, Þórunn, Ég og Erla) af stað niður í bæ, í einum bíl! Og það Micru! 4 fullvaxnar manneskjur í aftursæti Micru, pínu ÞRÖNGT! Við komumst að lokum inn í Kópavog þar sem okkur var skipt upp í tvo bíla og náð var í Berglindi vinkonu Erlu. Því miður náðu víst ekki allir starfsmenn alla leið niður í bæ..... (Sara:lol:)) Við sem eftir vorum skelltum okkur inná Sólon og skoðuðum einhverja aðra staði. Því miður entust ekki allir það lengi þannig að það endaði með því að ég og Hjalti urðum eftir að djamma í nokkra klukkutíma í viðbót. Auðvitað enduðum við á Glaumbar, hvar annarstaðar. Og hver var á Glaumbar, það er rétt Siggi stóri!!! Við Siggi skemmtum okkur bara nokkuð vel á dansgólfinu á meðam Hjalti sat á barnum, að staupa meira Sambuca. Það kvöld endaði á Pizza King þar sem ég þurfti nánast að halda á Hjalta á meðan hann borðaði. Bara fyndið.

Get með sanni sagt að djammið upp í bústað og það sem á eftir kom var eitt það skemmtilegasta sem ég hef upplifað.

Semsagt bara nokkuð góð helgi og frábær sunnudagur!

Það var nokkuð skemmtilegt að mæta í vinnuna núna í morgun þar sem það virðist vera að ALLIR sem ég vinn með séu núna búnir að fréttta hvað gerðist á starfsmannadjamminu. NO COMMENT! Hlakka rosalega til að mæta á morgun og hitta hina starfsmennina sem að málinu komu..........



» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 20:10:18 / londonboy

ANDSKOTINN!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Var búinn að skrifa um alla

helgina sem leið og það

hvarf !!!

Sé til hvort ég nenni að Skrifa allt aftur núna eða þegar ég kem heim í kvöld. HELVÍTIS!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 10:08:52 / londonboy

BREYTING ! ! ! !

Nú er það staðfest! Ég fer út 14.September..............

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 08:39:55 / londonboy

Þá er víst komið að stóru stundinni ! ! !

Jæja þá er víst komið að því að standa við stóru orðin....................

Það virðist vera komin bráðabirgða-brottfarar-dagsetning.

Næstu vikurnar verða víst svolítið annasamar hjá mér. Mamma og pabbi eru að fara til Danmerkur þann 29. Júlí og verða til 5. Ágúst (verð einn heima tíhí, partý, partý, PARTÝ) Þann 7. Ágúst koma svo Harpa og Terry til okkar Og verður Terry í 2 vikur áður en að hann fer til Úganda. Harpa verður hinsvegar í heilan mánuð. Þegar hún fer svo aftur út fer ég með henni og hittum við Terry aftur í London.

Þannig að eins og er, er planið að ég fari út þann 7.September.

Ég kem þó aftur til baka um jólin því það er ekki hægt að eyða jólunum og áramótum í London.

En VÁ það er víst að koma að þessu :| nú þýðir ekki að guggna á þessu og verð ég bara að bíta á jaxlinn og vona það besta.......................


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 18:22:39 / londonboy

VEIKUR!

Jæja þá é ég orðinn veikur.................. ég er búinn að vera að drepast úr kvefi og hausverk:^)

Ég ligg bara í bælinu hlustandi á Ipod-inn og reyni að láta mér batna........ ég er svo þreyttur að ég geri fátt í vinnunni annað en að sofa og forstöðukellingin náði mér sofandi í dag! :$

Sem betur fer gengur þetta örugglega fljótt yfir. ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 08:49:41 / londonboy

Írskir dagar á Akranesi. Commenta svo!

Vá hvað ég á ALDREI eftir að fara upp á Akranes aftur! Þessi staður er bara leiðinlegasta skítahola sem ég hef á ævi minni komið á, og ég hef komið á þær margar.

Ég sat í heita pottinum síðasta föstudag með Hjalta samstarfsmanni og við vorum að tala um að okkur langaði svo rosalega að kíkja eitthvað í útilegu í sumar. Þannig að það var ákveðið að drífa sig bara heim að sækja dótið okkar og svo var brunað upp á skaga til að kíkja á Írska daga.

Við lögðum af stað um sjö-leitið og var byrjað að fara í ríkið (hvað annað). Það tók ekki nema um klukktíma að komast upp á skaga en við höfðum gert ráð fyrir að vera miklu lengur.

Þegar á staðinn var komið var reynt að tjalda, ekki sniðugt í þessu rosa roki sem er alltaf þarna. Strax og búið var að tjalda byrjuðu lætin................

Það fyrsta sem við tókum eftir var einhver rauðhærður krakkadjöfull sem var fullur að reyna að finna einhvern til að slást við, hann gekk á milli að bögga fólk og svo fréttum við að hann hefði migið utan í tjaldið hjá fólki sem við þekktum. HALLÓ hvað er að fólki!

Þegar við fórum að rúnta um Akranes komumst við að því að þetta skítapleis er í raun bara ein gata með nokkrum hliðargötum. Það var varla sálu að sjá og þeir sem við sáum voru einhverjir krakkahálvitar eða rónar. Með rónum á ég við tannlausir frystihúsa starfsmenn milli fertugs og sjötugs blindfullt um miðjan dag. Og með krakkahálvitum á ég við milli 14 - 18 með aflitað hár alltof stórum buxum sem hanga niður á hné og of málaðar stelpu druslur hangandi utan í þeim til að betla vín.

En það var ákveðið að reyna að gera sem best úr þessu og héldum við á fínasta veitingastað bæjarinns............. HRÓA HÖTT!

Eftir það ákváðum við að drulla okkur upp í tjald og var strax farið að drekka, kannski myndi þetta ekki líta eins ömurlega út ef maður væri bara nógu andskoti fullur.

RANGT! Ekki skánaði það nú. Þegar við vorum búnir að drekka okkur vel fulla byrjuðu krakka fíflin við hliðina á okkur að spila þessa helvítis techo-drum'n base "tónlist" á fullu í úber kúl ofur flotta golfinum sínum GET A LIFE!

Við skelltum okkur á kvöldvökuna það kvöldið og héldum að það hlyti að verða bara gaman RANGT! Þegar við komum voru einhverjir algerir fábjánar uppi á sviði að reyna að koma fólki í stuð með því að syngja einhver þekkt lög. Eina góða við þetta allt saman var varðeldurinn sem maður gat hlýjað sér við..... EÐA EKKI loksins þegar manni var farið að hlýna aðeins kom slökkviliðið og "slökkti" í varðeldinum. Það er reyndi allavegana........ Snillingarnir sprautuðu með svo miklum krafti á þennan litla eld að glóð og brennandi spítnabraki rigndi yfir grasið hinumegin þannig að það kviknaði í því líka. SNILLD!

Þannig að við lögðum af stað gangandi til að finna einhvern stað til að djamma á..........

Það voru einungis tveir staðir sem við gátum fundið. Galito var fullur ad mömmum og pöbbum sem höfðu skilið krakkana eftir heima til að þau gætu drukkið sig blindfull og slefað upp í hvort annað eins og þeim lysti. OK allt gott og blessað, en það er EKKI fögur sjón þegar fólkið er komið yfir FIMMTUGT!

Þegar við komin að þeim næsta var þessi hrikalega röð, hlítur að vera góður staður ekki satt. Eftir að hafa staðið í röð í um það bil hálftíma og allar kellingarnar (og ég held einhverjir kallar líka) búnar að klípa nóg í nýju strákana komumst við inn.

Þar var haldið áfram að drekka og fékk Sambukka flaskan á barnum að finna fyrir því........... Allavegana gat Hjalti með engu móti munað hvernig hann komst til baka í tjaldið. Og kuldinn um nóttina var óbærilegur enda ekki furða að við sváfum báðir í öllum fötunum í svefnpokunum.

Ekki skánaði það á Laugardeginum............. Þegar við loksins rönkuðum við okkur var haldið til að finna sundlaugina á staðnum. Það var sem betur fer bara nokkuð gott að liggja í pottinum og slaka á. Bara fínasta sundlaug.

Um kvöldið var okkur alveg hætt að lítast á blikuna, við þorðum varla að vonast eftir því að djammið yrði eitthvað betra þetta kvöldið. Reyndar átti að vera "Lopapeysuballið" um hvöldið en það kostaði 3000 kall inn! NEI TAKK! En svo þegar við komum niður eftir þá bara urðum við að fara inn. Og sáum ekki eftir því! Þar kom eini ljósi punkturinn á helginni. Ballið var frábært! Og voru ýmsir hlutir farnir að gerast.

Eftir að hafa farið á barinn til að "fylla á tankinn" löbbuðum við um til að skoða varninginn. HJALTI!!! Ertu þú hér!?!? Gargaði einhver stelpa á okkur............ Einhver stelpa sem Hjalti hafði aldrei á ævinni séð..............

Svona til að stytta söguna............. Hjalti var að vinna með stelpu fyrir nokkrum árum sem hann var svo sem alveg hrifinn af, það virðist sem hún hafi líka verið hrifin af honum en þar sem þau þorðu hvorugt að gera neitt í því komust þau aldrei að því að þau væru bæði skotin í hvoru öðru....... Og þessi vinkona hennar klagaði öllu í Hjalta.

Og þá var byrjað að plana................ Þar næstu helgi ætlar vinkonan að fara á djammið með stelpunni sem er hrifin af Hjalta og svo á hann að koma "alveg óvænt" og hitta á þær á djamminu. Vonum það besta.

Af mér er það að segja að ég þurfti að hanga með einni að vinkonum henna á meðan þau voru að leggja á ráðin, ekki að það hafi ekki verið bara frekar gaman *hint* *hint* við skulum bara segja að það er Ása nokkur í næstu götu við mig sem á eftir að verða mjög vandræðaleg ef hún sér mig í hverfinu.

Allavegana skemmtum við okkur bar frekar vel það sem eftir var nætur.

En þá var komið að því að fara heim í tjald að sofa því okkur langaði að leggja sem fyrst af stað um morguninn. Rétt fyrir hádegi hlóðum við draslinu í bílinn og lögðum af stað. Ekki leið á löngu áður en löggan lét sjá sig. Ég sat alveg eins og skítur og fór að hugsa um hversu hratt ég hefði ekið en það var víst ekki ástæðan...........

Viltu blása........ Úbbs! Ég fattaði að það var kannki ekki svo langt síðan ég hætti að drekka.......... Ekki dropi í manninum takk fyrir, bless. HA?!?! Ég var svo viss um að það kæmi eitthvað slæmt út úr þessu. En það virtist allt hafa gengið upp.

Komum heim rétt eftir hádegi og vorum bara fegnir að koma heim. Seinna um kvöldið fórum við svo upp í sundlaug og hittum alla "yngri" vinnufélagana og tókum þátt í fótboltamóti sundlaugar Kópavogs. Kannski ekki alveg nógu sniðugt í ljósi fyrri atburða helgarinnar.

Eftir það var svo haldið heim þarsem ég hrundi niður í rúmið mitt og svaf þar til um morguninn þegar ég átti að mæta í vinnuna.

Jæja þá er þetta lengsta blogg sem ég hef nokkurntíman skrifað búið og ætlaði ég mér ekki að hafa þetta svona langt þó svo að ég hafi ekki sagt nema hluta af því sem gerðist um helgina.

Endilega skrifiði nú eitthvað comment um þetta svo þetta hafi nú ekki verði bara til einskis. Kemur vonandi seinna meira og líka hvað gerist þegar Hjalti fer að hitta stelpurnar...................

COMMENT PLÍS!!!!!!!!!!!!!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 23:49:48 / londonboy

NÝJAR FRÉTTIR ! ! !

Jæja það voru að berast nýjar fréttir frá London ! ! ! 

Harpa og Terry eru búin að trúlofa sig ! ! !

Terry bað hennar á afmælisdaginn ! ! !

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 07:40:35 / londonboy

Helvítis leti alla daga!

Jæja þá er ég kominn heim frá London. Hefði reyndar átt að vera búinn að blogga um það fyrir löngu...............

En það fara nú að koma inn nýjar myndir hjá mér. Tók alveg helling af myndum af litla frænda honum sem á að fá nafnið George Ari Tusiime de Vos.

Það var ekkert smá gott veður allan tímann og hafði maður ekki undan við að drekka því ég svitnaði ollu samstundis! Ég og Terry fórum á Laugardeginum að vinna á Potabello markaðnum og seldum ágætlega. Ég gat loksins fengið mér hinn langþráða Ipod sem hefur svoleiðis fengið að vinna fyrir sínu alveg síðan ég kom heim.

Svo fer að koma að því að maður flytji bara sjálfur út!!! Ég fékk allavegana að sjá staðinn sem verður heimili mitt fyrstu vikurnar.

Svo er ég að fara að ganga frá síðustu pappírunum sem vantaði upp á til að ganga frá síðustu lausu endunum hér heima, á reyndar eftir að selja bílinn :S

Fékk líka í gær skattaskýrsluna mína frá Bryndísi frænku og það verður sko fjör hjá mér fyrsta ágúst!!! Ég er að fá soldið mikinn pening frá skattinum he he he 8|

En jæja ég verð að hætta núna, klukkan er orðin hálf sjö að morgni og ég verð að fara að sofa, er að fara upp í toll á eftir til að sækja Itrip-ið sem ég pantaði á Ebay.

Svo er ég að spá í að kaupa mér síðu til að fara að setja myndir og svona inn fyrir alvöru..... Hvað finnst ykkur um það?

OG PLÍS SKRIFA Í GESTABÓK, MIG LANGAR AÐ SJÁ HVERJIR ERU AÐ KOMA OG SKOÐA HJÁ MÉR.

Og takið þátt í skoðana könnuninni 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Klukkan
Hagnýtar London síður
Ljósmyndasíður
Netverslanir
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 25 október